Viku seinna...........
Já loksins komst ég í það að setja inn myndir af gullmolunum mínum. Ég er nú ekkert lítið montin með þau svo að ég vil endilega að þið skoðið myndir af þeim :)
Búin að gera síðu fyrir Svandísi Huld.




Við höfum ekki ennþá komist út í göngutúr með dömuna. Hún varð lasin aðeins 4 vikna, fékk rosalegan hósta. Þegar hún var búin að jafna sig af honum var veðrið svo leiðinlegt að ég vildi ekkert fara út með hana. Svo er pæjan með kvef núna! En er að jafna sig af því. En mikið hlakka ég til að fara út í gögutúr. Ég hef ekki beint farið mikið út í sex og hálfa viku :)



En að einhverju allt öðru hehe... Ég var nánast hætt að horfa á sjónvarpið eftir að við fengum okkur flakkarann og ég kynntist downlodi :) En eftir að ég átti og sit oftar en ekki að gefa brjóst :) þá er ég oft með kveikt á sjónvarpinu og hef aukið sjónvarpsglápið mikið. Á þessu sjónvarpsglápi mínu hef ég komist að því að 1. febrúar er í rauninnu í janúar.... allavega samkvæmt stöð2. Þeir voru búnir að auglýsa í langan tíma að þátturinn bandið hans Bubba muni byrja í janúar. Svo allt í einu byrjar hann 1. febrúar. Tek það samt fram að ég er EKKI að bíða eftir að hann byrji hehehe.... Svo finnst mér líka að sýningin Laddi sextugur eigi að fá nýtt nafn, Laddi sextíu og eins :) þar sem að hún hefur verið í heilt ár og alltaf uppselt segja þeir í auglýsingunni :) Nei smá spaug, ég er ekkert orðin klikkuð þó að ég fari varla út úr húsi!




En litla stelpan mín, sem er að verða stóra stelpan mín er með lausa tönn! :) Það voru skrítnar tilfiningar sem að komu upp í mér þegar hún kom hlaupandi niður stigann í gær og sagði "mamma ég er með lausa tönn". Alveg eitt stórt bros :) Hún er frekar snemma í þessu, er að verða 5 ára eftir átta daga.

Jæja best að halda áfram að gefa brjóst :)
Knús á ykkur öll og verið endilega dugleg að kommenta hjá mér þó að ég sé ekki dugleg að kommenta hjá ykkur :) Ég fer alveg að birtast!

KnúSSSSSSS



Tíminn líður og áður en maður veit af er litla skottan orðin 5 vikna :) Nóg að gera á heimilinu og enginn tími fyrir nýjar myndir og fréttir í netheiminn :)
En prinsessan var skírð og henni gefið nafn á sunnudaginn.
Hún heitir Svandís Huld.



Vona að ég hafi tíma til að setja inn myndir á síðurnar hjá snúllunum mínum fljótlega.
Knús og kossar Særún mjög svo bissí húsmóðir :)



Loksins smá tími til að koma með smá fréttir :) Nóg að gera á heimilinu!
En sem sagt litla prinsessan okkar kom í heiminn 10. desember klukkan 07:48 :) 3520 grömm og 53 cm. Hún er algjört æði :) Rosalega vær, - drekkur, sefur og knúsast :) Systkynin er rosalega hrifin af henni og vilja ólm fá að halda á henni og knúsa hana. Við svífum um á bleiku skýji! Takk kærlega fyrir kveðjurnar í öllu því formi sem að þær hafa komið :)



Ég er búin að setja inn nokkrar myndir á síðurnar hjá systkynunum :) litla skottan fær síðu seinna ekki alveg tími í það núna :) Og já það er nýtt lykilorð, þið getið bara beðið um aðgang þar, ég er ekki með meilin ykkar sem að voruð að biðja um það í kommentunum.

Bestu kveðjur til ykkar allra og Gleðileg jól og hafið það sem best yfir hátíðarnar!

Knús og kossar úr hreiðrinu okkar.



Jólin hér, jólin þar, jólin þau eru alls staðar! En svo heyrði ég líka um daginn að jólin væru í Byko!? Þá er ég í miklum vandræðum því að ekki ætla ég með litla barnið mitt inn í Byko, það er að segja ef það verður komið úr bumbunni :) Þetta er orðin lengsta meðgangan mín hingað til, samt er ég ekki komin á dag ennþá..... En við erum öll í góðum fíling og spennan magnast :)

Búið að baka sörur OG borða þær (næstum allar) rúsínukökur voru líka bakaðar um daginn og var Bergrún Dögg hrifnust af þeim, algjör sælkeri þessi snúlla :) Laufabrauðið er líka vinsælt og magnið af mandarínum sem að hefur farið hér er gígantískt hehe.....

Brjálað að gera í að skreyta og er mesti hausverkurinn að finna út hvernig sé hægt að skreyta utanhús en það er allt að leysast ;) Svo að jólafílingurinn er að hreiðra um sig á þessum bæ enda komið leyfi á það :)

Hafið það öll sem best og njótið, það gleymist allt of oft. Öll fallegu jólaljósin út um allan bæ, kveikjum líka ljósið inn í okkur :)

Risaknús



Langar ekkert að deila miklu með ykkur þessa dagana. Það er nú ástæðan fyrir bloggleysi á þessari síðu.

Kannski ég bendi ykkur samt á eitt sem að ég rakst á um daginn. Ef þið eigið hund og langar að henda honum þá er sérstök ruslatunna til þess út á Garðskaga.




Hafið það annars sem best!



Þetta er svo æðislegt lag, verð bara að deila því með ykkur og kanna hversu klár ég er :) Viðurkenni í leiðinni að ég er alveg rosalega dramatísk og algjör GA aðdáandi, kynntist þessu lagi og hljómsveitinni sem að flytur það einmitt þar :)



En svona til að bæta aðeins við jólaumræðuna mína þar sem að ég vil ekki vera kölluð neikvæð eða/og Skröggur :) Ég er sko mikil jólakona, hef mjög gaman af öllu sem að við kemur jólunum og hlakka til þeirra, finnst jólalögin skemmtileg (er farin að raula þau inní höfðinu á mér), búin að kaupa megnið af jólagjöfunum og fleira og fleira. Það sem að truflar mig bara er að ég man alveg hvað það var erfitt að bíða eftir jólunum þegar ég var yngri. Þá fór maður samt bara að hugsa um þau í blá endann á nóvember, byrjun desember. Samt var þetta langur tími! Tíminn líður á allt öðrum hraða hjá börnunum en fullorðnum og ég vil ekki að börnin mín séu að spennast öll upp allt of snemma og bíða eftir einhverju sem að er ekkert að fara að gerast alveg strax hjá þeim, þó að mér sjálfri finnist stutt í það. Vona að þið skiljið hvað ég er að fara, ef ekki þá bara óheppin þið ;) ekki samt kalla mig einhvern jólapúka!

Ég man nákvæmlega þegar þetta breyttist hjá mér. Þá er ég að meina tímaskynið (ef að hægt er að kalla það því nafni). Sem sagt ég man hvenar tíminn fór allt í einu að líða hratt. Það var stór atburður sem að átti sér stað í mínu lífi og hafði þau áhrif á mig að ég leit lífið öðrum augum og þroskaðist mikið.

Brjálað að gera um helgina. Fórum í skátadinner á föstudagskvöldið, það var alveg ágætt. Meðal aldurinn var að vísu í hærri kantinum og veislustjórinn ekki alveg í uppáhaldi hjá okkur en það er alltaf hægt að skemmta sér ef að viljinn er fyrir hendi ;) Ég aulaðist að vísu til að fara í skóm með hæl á og þó að ég hafi ekki staðið mikið þá var ég alveg búin í fótunum og er ennþá aum hihi..... smá mistök! Svo fórum við í leikhús með krakkana á laugardaginn að sjá "Allt í plati" hjá leikfélaginu. Mjög fínt hjá þeim og höfðu krakkarnir mjög gaman af.

Knús á línuna og svo má alveg segja hæ ;)

Ein mynd af fallegustu mannverum sem að ég hef augum litið :)



Þá eru strákarnir mínir báðir búnir að eiga afmæli. Sæþór Elí á fimmtudaginn síðastliðinn og var að sjálfsögðu haldin veisla sem að átti að vera í smærri kantinum en fjölskyldan er svo stór að minni gat hún ekki verið ;) Og vá hvað barnið fékk mikið í afmælisgjöf, sumt háværara en annað :) Svo Bjarni á föstudeginum og fékk hann að sjálfsögðu flottustu afmælisgjöf sem um getur frá elskulegu eiginkonunni sinni :)
Þegar ég var að eiga Sæþór Elí sagði ég við ljósuna að pabbinn ætti nú afmæli daginn eftir en að ég ætlaði nú samt að vera svo leiðinleg og vera búin fyrir miðnætti. Þá sagði hún "ég átti afmæli í gær svo að það er bara samkomulag um að barnið komi í dag og sé á milli okkar" :) Algjört æði þessi ljósa og ég vildi að ég gæti pantað hana núna!

En úr einu í annað. Hvað finst ykkur um að jólaauglýsingar séu farnar að birtast og að jóladót sé komið upp í búðum tveimur mánuðum fyrir jól? Tveir mánuðir eru alveg 1/6 af árinu og þá eru jólin að byrja svo að þetta er eitthvað stærra hlutfall. Er ekki hægt að setja einhverjar reglur um að svona sé bannað til 15. nóvember eða eitthvað álíka? Sjálfri tekst mér að horfa framhjá þessu en ég hef meiri áhyggjur af börnunum mínum og maður mun eiga í mesta basli með að halda þessu frá þeim fram að skikkanlegum tíma. Laddi og Eiríkur Hauksson ættu í það minnsta að vera glaðir því að þeir eru að fá ósk sína uppfyllta ;) "Bara ef jólin væru aðeins lengri..." og "Ég vildi að alla daga væru jól" hehe.....

Allir í stuði á þessu heimili. Sæþór Elí er að vísu búinn að vera lasinn og er bara hérna heima að dúllast með mömmu sinni. Börnin mín bíða svo eftir meiri snjó, snjórinn sem að kom um daginn gerði mikla lukku og var nýttur alveg að fullu :) Það væri óskandi að það kæmi smá snjótíð með alvöru snjó ekki þessum sem að breytist alltaf í "slabb". Það er alveg einstakt að sjá gleðina og speninginn sem að kemur hjá þeim um leið og snókornin byrja að falla :)

Knús í krús og hafið það sem best :)








Gullin mín


Góðir bloggarar



Anna Björk
Anna Kristín
Bebba
Birta Rós
Dagga
Eva Rut
Gunnrún
Halla Karen
Hulda
Katrín
Kristín Erla
Sibba
Sveina

Gamalt og gott